Svavar Guðnason & Þorvaldur Skúlason & Jón Engilberts & Nína Tryggvadóttir & Louisa Matthíasdóttir.

Endurskoðun, uppgjör og innrás abstraktsins í Svavarssafni.

Laugardaginn 29. ágúst opnar myndlistasýningin Endurskoðun, uppgjör og innrás abstraktsins í Svavarssafni. Á sýningunni eru nokkur verk frá árunum 1941-49 eftir listafólk sem bar með sér nýja strauma inn í íslenskt listalíf um miðja síðustu öld. Listaverkin eru eftir Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Jón Engilberts, Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthíasdóttur. Við stríðsbyrjun fluttu Þorvaldur Skúlason og Jón Engilberts heim frá Kaupmannahöfn og þær Nína Tryggvadóttir og Louisa Matthíasdóttir fluttu einnig heim um það leyti. Svavar Guðnason varð hins vegar innlygsa í Danmörku og kom ekki heim fyrr en í stríðslok. Svavar er sá myndlistarmaður íslenskur sem hefur vakið hvað mesta athygli erlendis og var mikill brautryðjandi í íslenskri list á 20. öld. Þegar Svavar Guðnason flutti heim með fyrsta skipi eftir stríðslok 1945 flutti hann með sér talsvert af verkum sem hann sýndi í Listamannaskálanum í ágúst 1945. Eftir einangrun stríðsáranna gafst Íslendingum þar kostur á að sjá sjálfsprottna abstraktlist í fyrsta sinn. Sýning Svavars í Listamannaskálanum markaði tímamót, því með henni hófst samfelld saga íslenskrar abstraktlistar, sem átti eftir að fá mikið vægi í íslenskri myndlist næstu áratugina. Verk Svavars eru sýnd hér með verkum samtímamanna sem unnin eru á svipuðum tíma og átti Abstraktið eftir að hafa mikil áhrif á verk þeirra flestra næstu áratugina. Öll verkin á sýningunni tilheyra stofnagjöf Ragnars Jónssonar í Smára til Alþýðusambands Íslands sem lagði grunninn að stofnun Listasafns ASÍ sumarið 1961. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns ASÍ og Svavarssafns og kemur í stað

Make it stand out.

It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more. Or maybe you have a creative project to share with the world. Whatever it is, the way you tell your story online can make all the difference.

Previous
Previous

Eygló Harðardóttir – VÍSBENDINGAR

Next
Next

Valin verk úr safneign