Hildigunnur Birgisdóttir

Universal Sugar

Hildigunnur Birgisdóttir er annar listamaðurinn sem velst til þáttöku í nýrri sýningaröð Listasafns ASÍ þar sem sýnd eru nýjustu verkin í eigu safnsins. Sýningar Hildigunnar opna samhliða og standa jafnlengi í Garðabæ og Vestmannaeyjum og bera sama nafn á báðum stöðum. (Þess má geta Flugfélagið Ernir studdi verkefnið og bauð gestum afslátt af flugi til Eyja á opnunardag sýningarinnar.)

Viðfangsefni sýninganna, sem við fyrstu sýn virðast mjög áþekkar, endurspegla á margan hátt samfélagið á hvorum stað fyrir sig og sama má segja um húsnæðið sem þær hýsir. UNIVERSAL SUGAR í Vestmannaeyjum og Garðabæ eru í raun sama sýningin, birtingarmyndir hennar eru óteljandi en hér birtast tvær þeirra. Umgjarðir sýninganna auka enn á áhrifin, tvö mjög ólík rými frá mismunandi tímum hvort með sína sögu. Í verkum sínum hefur Hildigunnur rannsakað flókin kerfi með notkun hrekklausra eða jafnvel barnslegra tenginga. Hún leikur sér með spennuna sem myndast getur milli þarfar okkar til að útbúa óhlutbundin þekkingakerfi og líkamlegra þolmarka skynkerfa okkar. Verk Hildigunnar afhjúpa annmarka, sérvisku og fjarstæðukennd atriði sem finna má í sköruninni á milli hugsjónar og mannlegra skilningskerfa. Slíkur ágangur kemur sér ekki bara vel, heldur liggur hann til grundvallar verkum Hildigunnar, og gerir áhorfandann óvænt að miðju alheimsins. 

Hildigunnur Birgisdóttir (f. 1980) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003. Verk hennar hafa verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Kling & Bang, Nýlistasafninu, Annaellegallery í Stokkhólmi, Gallerí i8 og nú síðast á tvíæringnum Stöðum á sunnanverðum Vestfjörðum. Listasafn ASÍ vinnur nú að því að koma sér upp nýjum sal og á meðan eru sýningar safnsins á eldri og nýrri verkum haldnar í samstarfi við

Previous
Previous

Bjarki Bragason – SAMTÍMIS / SYNCHRONOUS

Next
Next

Kristín Gunnlaugsdóttir – GIMSTEINAR